Raja jóga

From TSL Encyclopedia
Revision as of 15:09, 29 September 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Með því að einblína á ÉG ER SEM ÉG ER umsnýr þú alla veru þína upp á það stig sem í Kabbalah heitir Keter — fyrsta sefírót sem stígur fram úr Ein Sof. Það er tilgangurinn með háleitri sameiningu. Þegar þú átt lausan tíma skaltu venja þig á að hugleiða hina voldugu ÉG ER-nærveru þína, úthella ást til hinnar voldugu ÉG ER-nærveru þinni, upphefja þá nærveru, íhuga alla hina dásamlegu eiginleika Ég ER-nærverunna...")
Other languages:

Í hindúasiði er raja jóga talin vera „konunglega“ eða æðsta leiðin að sameiningu við Guð, það er „konungleg leið til endursamþættingar“. Í raja jóga leitast maður við að uppgötva guðdóminn með því að stjórna huganum og tilfinningunum með einbeitingu og hugleiðslu. Það er litið á það sem sálrænt ferli eða tilraun þar sem maður viðhefur ákveðnar andlegar æfingar og fylgist með hinum innri andlegu áhrifum. Markmiðið, eins og Huston Smith útskýrði í The Religions of Man, er að öðlast „beina persónulega upplifun af „því sem er fyrir handan innra með“.[1]

Eins og skilgreint er í Perlu Austurlanda, eftir Geoffrey A. Barborka, merkir hugtakið „Râja-Yoga“ „konungleg sameining“ eða konungleg sameining hæfileika mannsins, andlega, hugrænt, siðferðilega og líkamlega.“[2]

Hinir uppstignu meistarar kenna að raja jóga sé leið til að ná samþættingu í öllum orkustöðvunum og við ÉG ER-nærveruna; það er hinn konunglegi vegur til endursamþættingar við guðdómlegt sjálf mannsins. Lykillinn að þessari aðlögun er fjólublái loginn og vísindi hins talaða Orðs, úrlausn á sálrænum vanda mannsins og að sýna tengsl við Guð með athöfnum sem eru til góðs fyrir sjálfið og samfélagið.

Fyrir nemanda hinna uppstignu meistara verður raja jóga, sem og öll önnur jógakerfi, að fela í sér leið rúbíngeislans undir rúbíngeislameisturunum.

Vísindi raja jóga

Hinir upprstignu meistarar hvetja til þess að við leggjum stund á raja jóga. Kvenmeistarinn Letó segir:

Við þurfum á þeim að halda sem líta á braut Krists-verundarinnar sem tilraunaleið, gera tilraunir með orku sjálfsins, eins og á raja jógabrautinni, leiðina sem er samþætting allra jógakerfanna sem mannkynið hefur þekkt og allra asana-líkamsæfinganna, öll hugleiðslukerfin. Það er samþætting Guðs-logans, loga andans innan deiglu efnisins. ...

Þetta eru vísindi. Það eru vísindin um að innri maðurinn verði birtingarmynd Guðs. Ég þrái að þið sannið veg Krists og Búddha á vísindalegan hátt, því að þeir eru lögmálsbundnir. Það er hægt að sýna fram á það. Þeir byggja á eðlisfræði, efnafræði, sálfræði. Þeir eru handan skilningarvitanna og þó sannanlegir. Þeir eru óáþreifanlegir en samt áþreifanlegir[3]

Átta stig raja jóga

Raja jóga hefur átta stig (einnig kallað hlutar eða limir).

Fyrsta stigið [(Yama)] er að forðast illvirki. Fimm atriði ber að forðast: meinleysi, sannsögli, heiðarleiki, hreinlyndi og óeigingirni. Þetta felur í sér að forðast nautnahyggju. Markmið jógans er að öðlast uppljómun með einbeitingu. Efnishyggja ber hann af leið.

Annað stig [(Niyama)] raja jóga eru fimm atriði ber að hafa í huga: hreinleika, nægjusemi, aðhaldssemi, lestun ritninga og íhuga stöðugt guðdómleikann.

Þriðja stig raja jóga eru líkamsstöður, asana-æfingar hatha jóga. Áttatíu og fjórar stöður styrkja líkamann og gera hugann stöðuglyndan og staðfastan. Þannig hefur hatha jóga verið kallað „stiginn að raja jóga.“[4] Samkvæmt Patanjali "verður líkamsstaðan stöðug og slök með stjórn á náttúrulegum tilhneigingum líkamans og með því að hugleiða óendanleikann."[5]

Fjórða stig raja jóga er öndunarstjórnun, þ.e. pranayama. Patanjali lýsir pranayama sem „stöðvun inn- og útöndunar. Hægt er að stöðva öndunina ytra sem innra eða halda aftur af henni í miðjum klíðum og stjórna eftir stund og stað og að ákveðnum tíma liðnum, þannig að stöðvunin er annaðhvort lengd eða stytt.“[6] Tilgangur pranayama er að stjórna huganum. Það hreinsar einnig líkamann og stuðlar að langlífi.

Fimmta stig raja jóga er að draga skynjunina frá skynheiminum. Jóginn sem hefur æft fyrstu fimm stigin af trúmennsku ætti nú að geta einbeitt huganum.

En jafnvel raja jóga býður ekki upp á fjólubláa logann. Þegar þú notar fjólubláa logann umbreytist allt hviklyndi og eirðarleysi hugans og ekki þarf sífellt að etja við truflanir. Huglíkaminn hreinsast smám saman. Þannig verður hugur Krists innra með í huglíkamanum og einbeitingin flæðir fyrirhafalaust í íhugun.

Sjötta stig raja jóga er einbeiting á einu viðfangi og sjöunda stig er hugleiðsla eða íhugun: sameinast viðfanginu. Jóginn ætti fyrst að velja viðfangsefni til íhugunar, eins og mynd af guði eða meistara sínum. Eða hann getur fest hugann við innra ljósið. Patanjali segir okkur að við getum fest hugann við „hverja þá guðlegu mynd eða tákn sem höfðar til [okkar].“[7] Jóginn getur færst frá því að hugleiða formið yfir í að hugleiða formleysi.

Áttunda stig raja jóga er samsömun eða samruni við andann, Atman, hugarástand sem kallast samadhi.

Samadhi - Alsæla

Patanjali skilgreinir samadhi á eftirfarandi hátt:

Rétt eins og hinn hreini kristall tekur lit frá hlutnum sem er næstur honum, þannig öðlast hugurinn einsleitni eða samsömun við hlutinn sem hann einbeitir sér að þegar hann er hreinsaður af hugsanabylgjum. ... Þessi samsömun eða samkenning við viðfangið sem maður einbeitir sér við er þekkt sem samadhi.[8]

Það eru til lægri og hærri stig af samadhi. Á lægra stigi öðlast jóginn samsömun við andlega kennarann, gúrúinn eða guðdóminn sem hann hefur valið að íhuga. Á hæsta stigi er enginn aðskilnaður á milli Atman og Brahman. Eins og Shankara lýsir því: „Atman samsamar sig ekki lengur við umbúnað sinn.“[9] Þetta er hinn mikli leyndardómur hinnar innri brautar hindúasiðar.

Þú gætir líka einbeitt þér og beint athygli þinni, eins og Saint Germain kennir, að hinni voldugu ÉG ER-nærveru þinni, nánar tiltekið að ÉG ER SÁ SEM ÉG ER á kortinu yfir hið guðdómlega sjálf þitt. Teikningin af kortinu mun brátt leysast upp og handan þess má þá greina veruleika hins dýrðlega volduga Guðs-sjálfs þíns.

Með því að einblína á ÉG ER SEM ÉG ER umsnýr þú alla veru þína upp á það stig sem í Kabbalah heitir Keter — fyrsta sefírót sem stígur fram úr Ein Sof. Það er tilgangurinn með háleitri sameiningu. Þegar þú átt lausan tíma skaltu venja þig á að hugleiða hina voldugu ÉG ER-nærveru þína, úthella ást til hinnar voldugu ÉG ER-nærveru þinni, upphefja þá nærveru, íhuga alla hina dásamlegu eiginleika Ég ER-nærverunnar — og sjá hvernig þú verður rafskaut í jörðinni sem dregur niður strauma þessa háa vitundarástands inn í jörðina.

Að breyta anda í efni

In the East, the whole pattern is getting Matter up to Spirit, or getting the consciousness out of Matter, escaping Matter and going into Spirit. And that’s why the word “OM” is used, because it cycles energies up into the Presence.

The emphasis in the West is bringing Spirit into Matter. We do that by the affirmation “I AM THAT I AM,” which cycles energies from the Presence down to this plane.

That is our path. If we accept it, we can have the integration that we seek, which is the integration of the soul’s reunion with the I AM Presence in the ascension. Raja yoga does not promise the ascension; the highest thing it promises is samadhi. But you come back from samadhi and you are still in this form; you are still carrying around your karma.

Sjá einnig

Jóga

Heimildir

Pearls of Wisdom, 33. bindi, nr. 44, 11. nóvember, 1990.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path

  1. Huston Smith, The Religions of Man (Harper & Row, 1965), bls. 53.
  2. Geoffrey A. Barborka, The Pearl of the Orient: The Message of the Bhagavad-Gita for the Western World (Wheaton, IL: Theosophical Publishing House, 1968), bls. 11.
  3. Leto, 15. apríl 1976.
  4. Alain Daniélou, Yoga: Mastering the Secrets of Matter and the Universe (Rochester, Vt.: Inner Traditions International, 1991), bls. 31.
  5. Patanjali, Yoga Sutra 2:47, í Swami Prabhavananda og Christopher Isherwood, þýðing, How to Know God (Hollywood, Kalifornía: Vedanta Press, 1981), bls. 161.
  6. Patanjali, Yoga Sutra 2 :49-50, í Prabhavananda og Isherwood, „How to Know God“, bls. 162.
  7. Patanjali, Yoga Sutra 1:39, í Prabhavananda og Isherwood, How to Know God , bls. 76.
  8. Patanjali, Yoga Sutra 1:41, í Prabhavananda and Isherwood, How to Know God, bls. 79.
  9. Shankara, vitnað í Prabhavananda og Isherwood, How to Know God, bls. 93.