Skrásetningavörðurinn

From TSL Encyclopedia
Revision as of 11:29, 29 July 2025 by Hbraga (talk | contribs)

„Skráningarvörðurinn“ er heimsvera sem hefur umsjón með ljósvakaskrám þessarar vetrarbrautar, áhrifum alls þess sem hefur gerst á efnissviðunum.

Um þjónustu sína hefur skráningarvörðurinn sagt:

Sem skráningarvörður vil ég segja ykkur að ég ber mikla ábyrgð! Sem betur fer hefur hinn eilífi faðir gefið mér marga hæfa aðstoðarmenn [skráningarenglana]. Ég er hér til að segja ykkur að það er ekki einn smástafur né einn stafkrókur fer til spillis af orku sem fer í gegnum neina lífsstrauma ykkar sem er ekki skráður á hina eilífu annála. Sem betur fer, með krafti hins helga elds og kærleika hins ástríka Saint Germains, hefur verið komið á fót sérstöku skilyrði fyrir alheimslögmálið þar sem þeir sem nota fjólubláa eldinn trúfastlega geta afmáð skráningarnar. Og með áhrifum logans er karma þeirra fjarlægt næstum um leið og það verður til.

Ég vil benda ykkur á, ástkæru vinir, að í hvert skipti sem karma er afmáð og umbreytt er það skráð tímabundið. Ef einstaklingar halda áfram að endurtaka sömu brot gegn hinu mikla alheimslögmáli sí og æ, þá kemur sá tími þegar athafnir þeirra eru vaktar til vitundar Karmadrottnanna. Þá kemur til kastanna sérstök virkni lögmálsins á lífsstraumana þar sem allt karma þeirra verður gert upp til jöfnunar. Því það er algerlega nauðsynlegt að mannkynið horfist í augu við sínar eigin mannlegu misgjörðir! Þessi aðgerð er framkvæmd til að tryggja að allir lífsstraumar muni ekki stöðugt snúa sér til vinstri villunnar. Þetta er hamlandi aðgerð, gerð úr garði til að færa þá aftur til hægri handar Guðs og til hægri handar samfélagsins. Þetta er algjörlega gerð í guðlegu kærleiksskyni.[1]

Skráningarvörðurinn heldur úti umfangsmiklu skjalasafni og rannsóknaraðstöðu svo að hægt sé að skoða hvenær sem er skrár lífsstraums sem kann að vera að biðja um mátt, tækifæri eða ívilnun frá Karmadrottnum. Þannig er ein af skyldum embættis hans að veita uppstignum meisturum og Karmíska ráðinu samantekt á æviskrám sálar á þroskabrautinni sem það getur haft til umfjöllunar.

Um páskana 1962, í fyrstu upplestri sínum, útskýrði skráningarvörðurinn að hann hefði

... tvöfaldan annál fyrir hvern lífsstraum. Annað er segulmagnað af hinum helga eldi sjálfum og ber allt lífsmynstur einstaklingsins. Það er óbreytanlegt og óafturkallanlegt: það er lífslögmálið fyrir hvern mann! Minni annáll er settur ofan á hið varanlega. Það er miklu þynnra og efnisgerð þess er nokkuð sveigjanlegri. Það inniheldur allt stafrófskver lífs þíns frá þeim tíma sem þú komst fyrst fram í einstaklingsbundinni vitund. Sérhvert merki um tilvist þína, hverja hugsun sem þú hefur haft í huga er skráð þar.

Ég horfi ekki á þessa annála nema Karma-ráðið biðji mig sérstaklega um það. Þetta gerist þegar mat á lífsstraumi er óskað til að kanna tækifæri þeirra eða þörfina á að lækka tímabundið hina reiddu karmaexi yfir þeim. Þegar nauðsynlegt er af þeirri ástæðu að gera slíkt mat, fullvissa ég ykkur um að ég beini tafarlaust augum mínum að hinum fjólubláa eldi umbreytingarinnar til að útrýma úr vitund minni samstundis öllu sem er skrifað á annálana vegna vansæmdar mannlegrar vitundar.[2]

Þegar sálin kemur fyrir Karma-ráðið til að gera grein fyrir reikningsskilum að loknu hverju æviskeiði, les skráningarvörðurinn eða einn af fulltrúum hans fyrir Karma-drottna annálana sem teknar eru úr Lífsbókinni. Skráningarvörðurinn les einnig annála þeirra lífsstrauma sem hafa komið til efstadóms í Höll hins helga elds á Síríusi, og í þeirri stöðu er honum einum heimilt að standa frammi fyrir hásæti hins almáttuga Guðs.

Þegar sá tími kemur að hringrás endurfæðinga sé lokið og sálin stígur upp til himna, les skráningarvörðurinn eða einn af aðstoðarmönnum hans annála lífsstraumsins til heiðurs árangri hans. Skráningarvörðurinn, sem starfar með eigin Krists-sjálfi einstaklingsins, kveikir síðan í kyndlinum á þeim annálum sem bera vitni um forgengilega þátttöku sálarinn í lífinu sem hafa bundið hana við jörðina. Eftir það, segir hann, „í eilífum annálum Guðs verður aðeins eftir skrá um eilífa fullkomnun; þannig, í framtíð lífsstraumsins, finnst fullkomin einstaklingsbundin útlistun Guðs-birtingarinnar, af manninum sköpuðum í mynd og líkingu Guðs.“[3]

Sjá einnig

Skráingaengill

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Keeper of the Scrolls.”

  1. The Keeper of the Scrolls, 22. apríl 1962.
  2. Sama heimild.
  3. Sama heimild