Hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Great Divine Director and the translation is 100% complete.
Hinn mikli guðdómlegi stjórnandi

Hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi er kosmísk vera. Hann segir: "Ég er þekktur sem hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi vegna þess að ég hef sameinað vitund mína við kosmískar hringrásir guðdómlegrar ráðagerðar Guðs fyrir órafjölda ljósalheima." Orsakalíkaminn hans er risastórt hvel sem umlykur alla plánetuna. Innan þess hvels eru vefgrindur og aflsvið sem uppkvaðning dóma fara í gegnum.

Hann stóðst fyrir löngu þessar vígslur sem settu hann á kosmískt þjónustustig og gerðu hann hæfan til að verða manú ("ættfaðir") sjöunda rótarkynþáttarins. Manú rótarkynþáttar er löggjafinn sem setur fram guðdómlega áætlun fyrir heilt þróunartímabil. Manúinn felur í sér frumgerð (erkitýpu) fyrir heila lífsbylgju sálna sem munu holdgerast á jörðinni á ákveðnu tímabili – hina guðlegu ímynd og líkingu sem þær eru gerðar úr og forsniðið að örlögum þeirra. Sjöunda rótarkynþættinum er ætlað að endurfæðast fyrst í Suður-Ameríku undir stjórn hins Mikla guðdómlega stjórnanda.

Þjónusta hans frá fyrri tíð

Áður en Atlantis sökk í sæ, meðan Nói var enn að smíða örkina sína og varaði fólkið við því að flóðið mikla væri í aðsigi, kallaði hinn Mikli guðdómlegi stjórnandii Saint Germain og nokkra trúfasta presta til að flytja frelsislogann frá Hreinsunarhofinu á öruggan stað við rætur Karpatafjalla í Transylvaníu. Hér viðhöfðu þeir helgisiði til að örva frelsiseldana, jafnvel á meðan mannkynið var að afplána karmasyndir sínar samkvæmt guðlegum tilskipunum.

Á síðari æviskeiðum sínum enduruppgötvuðu Saint Germain og fylgjendur hans, undir leiðsögn hins Mikla guðdómlega stjórnanda, logann og héldu áfram að gæta helgidómsins. Seinna stofnaði hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi, með aðstoð lærisveins síns, athvarf þar sem eldurinn var staðsettur og reisti Rakoczy-óðalsetrið, konungssetur Ungverjalands. Vegna tengsla sinna við Rakoczy-herragarðinn, ber hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi nafnbótina Meistarinn R — „R“ sem táknar Rakoczy.

Þjónusta hans nú á dögum

El Morya segir okkur að hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi hafi verið bakhjarl Evrópu í þúsundir ára. Hann er kennari Saint Germains og margra annarra meistara, þar á meðal meistarans Jesú og El Morya.

Hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi er félagi í Darjeelingráðinu og einnig aðili í Karmíska ráðinu, þjónar þessum stofnunum á fyrsta geisla heilags vilja Guðs. Hann skipar einnig tólftu línu innan sólarstigveldanna tólf fyrir hönd þróunar þessa sólkerfis og þjónar stigveldi steingeitarinnar með því að aðstoða mannkynið við að sigrast á mennskum sköpum sínum.

Ákall um aðstoð hans

Hann er oft sýndur með stóru bláu belti, skrýddu töfrandi bláum gimsteinum, með töfrandi ljósgeislum sem streyma frá hjarta hans, hálsi og höfði. Þessir ljósgeislar eru mjög öflugir. Þegar þú ferð með möntrufyrirmæli til hins Mikla guðdómlega stjórnanda geturðu tengst þessum ljósgeisla og vernd hans. Hann mun gyrða þig bláa beltinu sínu á ljósvakasviðinu til að vernda orkustöðvar þínar og hjálpa þér við að sinna guðdómlegri fyrirætlun þinni.

Hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi sér um notkun ljóssskífunnar sem beinist að þyrlandi virkni fjólubláa logans. Þegar eldskífan snýst réttsælis á ljóshraða dregur hún til sín inn í miðjuna hið mishæfða efni í rafræna beltinu og í fjórum lægri líkömunum. Þú getur séð fyrir þér þessa ljósskífu sem risastóra rafmagnsslípuvél sem gefur frá sér ljósneista þegar hún þyrlast og skapar hringiðu sem dregur til sín allt efni sem þarfnast umbreytingar.

Guðleg leiðsögn er vitundarástand í Guði. Það er fullkomin vitund um fyrirætlun hans fyrir allt líf. Að endingu inniheldur þessi vitund í sjálfri sér ekki aðeins stefnuna heldur rökrétta niðurstöðu hennar í aðgerðauppfyllingu. Fyrir löngu, áður en sálir okkar áttuðu sig á guðlegri ímynd sinni, skynjaði vígsluþegi drottna sólarinnar þörf lífsbylgna hér að neðan fyrir því að þekkja fyrirætlunina og halda áfram vegferð sína með óskeikulum leiðbeiningum frá Pólstjörnu verundarinnar til að fylla upp í frumdrætti ráðagerðarinnar, eftir því sem hugsunin mótaðist, eftir því sem hvati og vilji safnaði í sig kröftum til lúkningar, sem efnis-birting, líkamleg uppfylling, að ljúka hringrásinni. Nafn hans varð líka aukaatriði miðað við logann sem hann dýrkaði.

Og svo, hinn nafnlausi sem tilbað Guð sem lögmál óskeikullar leiðbeiningar varð þekktur sem hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi vegna þess að fyrir tilbeiðslu sína varð hann hinn dáði og síðan hinn aðdáunarverði. Og svo varð staðan hans í hinu kosmíska helgiveldi, sem hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi, að Guðs-sjálfsmynd hans.

Hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi hefur feðrað ritraðir Viskuperla, sem kallast „Hin vélræna hugmynd,“[1] til að hjálpa okkur við að skilja áskoranir frammi fyrir armageddon (ragnarökum). „Rakoczy mars“ eftir Franz Liszt er innblásinn frá orsakalíkama hans.

Gjanes og hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi

Aðalgrein: Gjanes

Hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi er kosmísk vera sem auðkennist af hinum mikla orsakalíkama sínum þar sem hann tendrar minnisskrár, frumsnið og huga Guðs fyrir alla þróun þessarar útöndunar guðdómsins. Í orðalagi og skilningi uppstignu meistaranna tölum við um hinn Mikla guðdómlega stjórnanda. Í hindúasið tala þeir um Gjanes. Þegar maður íhugar tíðnisveiflur þeirra beggja finnur maður að þeir eru eins og tveir hlutar af heild.

Að íhuga Gjanes leiðir mann að þessu óendanlega forðabúri frumdráttarins í huga Guðs. Þegar maður tengir sig við þetta forsnið hefur maður samband við kjarnaspíral orkunnar sem maður verður að losa úr frumeindakjarna sinnar eigin ÉG ER-nærveru til þess að geta hafið hvaða verkefni sem er í þjónustu Guðs. Maður getur náð sömu snertingu í gegnum uppstigna meistarann, hinn Mikla guðdómlega stjórnanda, sem sjálfur, eins og mætti segja, verður Gjanes, verður þessi hugur, þessi kosmíska tölva.

Athvörf

Aðalgrein: Rakoczy óðalsetrið

Aðalgrein: Ljóshellirinn

Hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi heldur áfram til í Rakoczy óðalsetrinu í Transylvaníu þar sem hann beinir frelsisstraumum að Austur- og Vestur-Evrópu. Aðhvarfið var einu sinni efnislegt en er nú á ljósvakasviðinu.

Auk Rakoczy-óðalsetursins hefur hann jarðtengingu i ljóshellinum á Indlandi þar sem hann notar mátt sinn til að hreinsa fjóra lægri líkama háþróaðra vígsluþega af eftirstandandi karma og gefa þeim hreinsuð starfstæki til að veita kosmíska þjónustu í efnisforminu fyrir uppstigningu þeirra.

Sjá einnig

Bænavaka hins Mikla guðdómlega stjórnanda

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Great Divine Director”.

Elizabeth Clare Prophet, “Ganesha and the Great Divine Director,” 14. apríl, 1979.

  1. einnig fáanleg sem Mark L. Prophet, The Soulless One: Cloning a Counterfeit Creation.