EG ER-Faðirvorið

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page I AM Lord's Prayer and the translation is 100% complete.
Other languages:

ÉG ER-Faðirvorið sem Jesús gaf er einmitt sú útgáfa sem hann kenndi innsta hring lærisveina sinna fyrir tvö þúsund árum. Það var birt öllum heiminum við dögun gullaldarinnar í páskafyrirlestri sem galíleski meistarinn gaf fyrir munn boðberans Mark L. Prophet 14. apríl 1963. Þessi bæn opinberar nafn Guðs sem „Ég ER,“ sama opinberun og Móse var gefin þegar Guð talaði við hann úr runnanum sem stóð í ljósum loga, en brann ekki, og lýsti því yfir að hann væri ÉG ER SÁ SEM ÉG ER.

Með þessum lykli að sjálfsmyndarforsniði opnaði Guð fyrir mannfjöldanum, sem en er í þróun í tíma og rúmi, þekkinguna á vaxtarsprota guðdómsins í þeim. Bæði Móse og Jesús sáu þessa logandi nærveru – ÉG ER-nærverunnar – sem háleitt tækifæri mannsins til að verða Krists-bornar verur.



ÉG ER-Faðirvorið
eftir Jesú Krist
Faðir vor, þú sem ert á himnum,
helgist þitt nafn, ÉG ER.
ÉG ER að koma til þíns ríkis
ÉG ER þinn vilji
ÉG ER svo á jörðu sem á himni
ÉG ER að gefa oss í dag vort daglegt brauð
ÉG ER að fyrirgefa oss vorar skuldir
ÉG ER svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
ÉG ER að leiða oss eigi í freistni
ÉG ER heldur að frelsa oss frá illu
ÉG ER þitt ríki
ÉG ER mátturinn og
ÉG ER dýrðin í eilífri, ódauðlegri, birtingu—
ÉG ER allt þetta.


Með því að nota nafn Guðs, ÉG ER, sem staðfestingu á þeirri veru í hverri línu Faðirvorsins er lærisveinninn, eftir að hafa helgað nafn Guðs, ÉG ER, í raun að staðfesta:

Guð í mér er (verknaður þess að) komi þitt ríki
Guð í mér er (verknaður þess að) að verði þinn vilji
Guð í mér er (verknaður verundarinnar) svo á jörðu eins og Guð í mér er (verknaður verundarinnar) sem á himni
Guð í mér er (verknaður þess að) gefa oss í dag vort daglegt brauð
Guð í mér er (verknaður þess að) fyrirgefa oss vorar skuldir
Guð í mér er einnig (verknaður þess að) vér fyrirgefum vorum skuldunautum
Guð í mér er (verknaður þess að) leiða oss úr freistingum
Guð í mér er (verknaður þess að) að frelsa oss frá öllu illu
Guð í mér er (verknaður þess að) ríkið
Guð í mér er (verknaður þess að) mátturinn og
Guð í mér er (verknaður þess að) dýrð Guðs í eilífri, ódauðlegri birtingu—
er Guð allt þetta í mér.

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet, Mary’s Message for a New Day.

Prayers, Meditations and Dynamic Decrees for Personal and World Transformation.