Heros and Amora/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
No edit summary
 
Line 26: Line 26:
{{main-is|Heros and Amora's retreat|Athvarf Heros og Amora}}
{{main-is|Heros and Amora's retreat|Athvarf Heros og Amora}}


Athvarf þeirra er á ljósvakasviðinu uppi yfir Winnipeg-vatni í Kanada. Útgeislun rauðgula loga hans ásamt [[Special:MyLanguage/Temple of the Crystal-Pink Flame|athvarfi erkienglanna Samúels og Karítas]] á þriðja geislanum uppi yfir St. Louis, Missouri-fylki í Bandaríkjunum, mynda kærleiksboga sem tengir athvarf þeirra saman.
Athvarf þeirra er á ljósvakasviðinu uppi yfir Winnipeg-vatni í Kanada. Útgeislun rauðgula loga hans ásamt [[Special:MyLanguage/Temple of the Crystal-Pink Flame|athvarfi erkienglanna Samúels og Kærleika]] á þriðja geislanum uppi yfir St. Louis, Missouri-fylki í Bandaríkjunum, mynda kærleiksboga sem tengir athvarf þeirra saman.


<span id="See_also"></span>
<span id="See_also"></span>

Latest revision as of 18:13, 13 December 2024

Other languages:

Heros og Amora eru elóhímar á þriðja geisla kærleika Guðs sem táknar anda Guðs föður og Guðs-móður á hinum rauðgula skúfi þrígreinda logans. Þau fylla frumþætti jarðar, lofts, elds og vatns með samloðandi krafti heilags anda. Þannig, í krafti kærleikans sem þau geisla frá sér, haldast pláneturnar á sporbaugum og rafeindirnar á tilteknum brautum sínum.

Útgeislun Heros og Amora er rauðgul með hvítu litbrigði.

Árið 1995 komu Heros og Amora með stefnumótandi ívilnun þar sem þau komu haganlega fyrir þúsundum „útstöðva af rúbíngeislanum“ í jörðina sem „geisla 'hita' rúbíngeisla til að koma á jafnvægi á innri sviðum jarðar næst kjarnanum". Þær koma á stöðugleika á jörðinni og draga úr krafti þeirra sem hafa illan ásetning og lýsa upp myrkrið á jörðinni. Þau sögðu einnig að þessi aðgerð myndi valda breytingum á jörðinni og bættu við: „Þið megið biðja fyrir því að þessar breytingar komi ekki efnislega fram. Þau hvöttu okkur til að gefa möntrufyrirmæli fjólubláa logans daglega til að koma á jafnvægi á plánetunni.

Englar okkar munu gera við brestina í ljósvakaslíðrinu [(umgjörð ljósvakalíkamans)], og þegar þið aukið notkun fjólubláa logans munu þeir gera við misbrestina á jörðinni. Og þið munuð sjá skerðingu á völdum þeirra sem hafa ofsótt líkama Guðs á jörðu [(mennina)]. Staðfestið þennan spádóm með áköllum ykkar og hann mun skjótt rætast![1]

Heros og Amora vilja að við einbeitum okkur fyrst að því að efla þessa rúbíngeislaútstöðvar og í öðru lagi að sigra öll andkærleiksöfl sem standa í vegi fyrir sameiningu tvíburaloga og sameiningu okkar við æðra sjálf okkar. Sjáið fyrir ykkur lagskiptar rúbín-geislaútstöðvar sem geisla miklum rúbínhita um alla jörðina.

Heros og Amora tala um kærleika sem er ekki almennt skilinn:

Kærleikurinn er hið öflugasta afl alls alheimsins, losun hins hvíta eldkjarna frumeindarinnar, kjarna leyndu geislanna. ... Sjáið þá hvernig Guð fullnustar dómfellingu með tilstyrk elóhímanna og fyrir tilstilli kærleikans, og sjáið hvernig á komandi tímum gefst styrking tveggja valkosta: þeir sem velja ljósið munu finna ljós sitt styrkt ... og þeir sem eru af myrkrinu munu verða þessi samsuða undirvitundarinnar þar sem niðursveiflur sjálfstortímingar og ófara leiða síðan til annars dauða. Veljið þá lífið! ... Veljið hollustu við innri logann. Og ekki hafa áhyggjur af því hvort boðberinn, sendiboðinn, hafi rétt fyrir sér, hafi rangt fyrir sér, sé sannur eða sé ekki sannur. ... Verið umhugað um valið innan skjaldborgar ykkar eigin vitundar, eigin verundar og lífs, og þá komast þið á snoðir um hvað sé í raunveruleiki.[2]

Í goðafræði

Grikkir til forna gætu hafa þekkt Heros sem Eros, Rómverjar sem Kúpídó — persónugervingur kosmísks afls, eins og þeir töldu, sem færir samhljóm í glundroða, samræmir frumþættina sem mynda alheiminn.

Goðafræði Grikkja og Rómverja á líklega rætur sínar að rekja til minninga þeirra um forn kynni við þessa elóhima. Frá þeim tíma hafa guðir og gyðjur hins vegar öðlast mannleg einkenni í hugum fólksins. Þess vegna endurspegla goðsögulegar verur ekki endilega raunveruleika elóhímanna.

Athvarf

Aðalgrein: Athvarf Heros og Amora

Athvarf þeirra er á ljósvakasviðinu uppi yfir Winnipeg-vatni í Kanada. Útgeislun rauðgula loga hans ásamt athvarfi erkienglanna Samúels og Kærleika á þriðja geislanum uppi yfir St. Louis, Missouri-fylki í Bandaríkjunum, mynda kærleiksboga sem tengir athvarf þeirra saman.

Sjá einnig

Elóhím

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Heros and Amora”.

1978 Pearls of Wisdom, kaflinn um elóhím.

  1. Heros and Amora, „Bricks of Ruby Ray Planted in the Earth for the Restabilization of the Planet,“ Pearls of Wisdom, 38. bindi, nr. 40, 17. september, 1995.
  2. „The Elohim and Their Retreats,“ Pearls of Wisdom, 1978, bls. 351.